Vertu með!
Verslunin Reykjavík Bags var opnuð að Skólavörðustíg 2 í nóvember 2008 og hefur allar götur síðan lagt áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum töskur, fylgihluti og skart frá íslenskum hönnuðum eingöngu. Í dag erum við í samstarfi við liðlega 30 hönnuði sem selja vörur sínar í gegnum verslun okkar. Reykjavík Bags hefur gengið afar vel og ljóst að starfsemin er komin til að vera.
Þar sem rýmið í versluninni er takmarkað höfum við því miður ekki getað tekið til sölu allar þær vörur sem okkur hafa verið boðnar frá íslenskum hönnuðum. Til að ráða bót á því höfum við nú opnað þessa vefsíðu sem hefur það að markmiði að kynna og selja íslenska hönnun hérlendis og erlendis og inniheldur fróðleik um hvern hönnuð og þær vörur sem viðkomandi framleiðir.
Langar þig að vera með?
Okkur langar að bjóða þér að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur og gefa þér kost á að kynna þig og þínar vörur á vefsíðunni gegn afar vægu gjaldi og er boðið upp á tvær mismunandi leiðir:
Leið A
-
Síða með upplýsingum um þig á íslensku og ensku ásamt ljósmynd af þér.
-
Allt að 20 vörunúmer.
-
Hverri vöru geta fylgt allt að 3 ljósmyndir.
-
Innsetningu á efni, vörum, ljósmyndum og öðrum upplýsingum.
-
Daglegt viðhald (taka út vörur sem eru uppseldar/ekki fáanlegar).
-
Tenging við greiðslugátt.
-
Mánaðarleg skýrsla með upplýsingum um fjölda heimsókna á síðurnar þínar.
-
Mánaðargjald: kr. 1.500
Leið B
-
Síða með upplýsingum um þig á íslensku og ensku ásamt ljósmynd af þér.
-
Allt að 50 vörunúmer.
-
Hverri vöru geta fylgt allt að 3 ljósmyndir.
-
Innsetningu á efni, vörum, ljósmyndum og öðrum upplýsingum.
-
Daglegt viðhald (taka út vörur sem eru uppseldar/ekki fáanlegar).
-
Tenging við greiðslugátt.
-
Mánaðarleg skýrsla með upplýsingum um fjölda heimsókna á síðurnar þínar.
-
Mánaðargjald: kr. 2.500
Ef þörf er fyrir 50 vörunúmer eða fleiri þá semjum við um slíkt sérstaklega.
Fyrirkomulag samstarfsins
Þegar þú ákveður að kynna þig og bjóða vörur þínar til sölu á vefsíðu Reykjavík Bags þá hefur þú samband við okkur símleiðis í síma 561 1110 eða sendir okkur tölvupóst á netfangið shop@reykjavikbags.is Við sendum þér samstarfssamning til baka með leiðbeiningum um hvernig við berum okkur að í samstarfinu.
Ferlið
-
Við gerum með okkur samstarfssamning
-
Þú sendir okkur ljósmynd/ljósmyndir af þeim vörum sem þú hyggst kynna og bjóða til sölu ásamt Excel-skjali þar sem vörurnar eru taldar upp.
-
Þú sendir okkur ljósmynd af þér og þann kynningartexta sem þú kýst.
-
Við setjum upp síðuna þína og vörurnar þínar á vefsvæðið.
-
Þegar allt er tilbúið verður sérstök kynning á þér og þínum vörum á forsíðu vefsins og sendur er sérstakur tölvupóstur á póstlistann okkar til að vekja athygli á þér.
-
Þegar vara er seld í gegnum vefsíðuna annast Borgun um örugga greiðslugátt fyrir viðskiptavini okkar.
-
Við fáum samstundis tilkynningu um að tiltekin vara sé seld. Við sendum þér upplýsingar um hvaða vöru er að ræða, nafn og póstfang kaupanda og þú sérð um að senda viðkomandi vöruna sé hún ekki til staðar í verslunni að Skólavörðustíg 2.
-
Við gerum upp við þig um hver mánaðarmót með innleggi á þinn bankareikning fyrir tímabilið 20.-20. hvers mánaðar.
Fáðu tvo mánuði fría!
Ef þú vilt prófa þá ættirðu að hafa samband við okkur núna því við bjóðum sérstakt opnunartilboð til þeirra sem ganga til samstarfs við okkur núna í nóvember og fá þeir aðilar fyrstu tvo mánuðina fría!
